Skráning á Póstlista
Liðin Rally
Deildu á Facebook
Deildu þessari opnu á Facebook

Aðalfundur BÍKR yfirstaðinn.

Á föstudaginn s.l. var aðalfundur BÍKR haldin og fór hann fram samkvæmt áður auglýstri dagskrá. Nýr formaður var kjörinn, Þorkell Símonarson og kemur hann inn í stjórnina ásamt Guðmundi Höskuldssyni. Varamaður stjórnar var kjörinn Ísak Guðjónsson. Endurskoðendur reikninga voru endurkjörnir og munu gegna sínu hlutverki áfram.

Hér að neðan má sjá punkta úr fundargerð sem að Jóhannes V. Gunnarsson ritaði.

 

Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur BÍKR

 

Aðalfundur 25.11.2011 Engjavegur RVK. Fundinn hélt Jón Þór formaður klúbbsins.

Farið var í gegnum dagskrá aðalfundar samkvæmt kynningu (powerpoint) en hér eru umræðupunktar frá fundinum. Ritari var Jóhannes V Gunnarsson (17 mættir)

· - Jón Þór og Aðalsteinn J eru á leið úr stjórn ásamt Marian sem hefur verið varamaður. Þorkell Símonarson bauð sig fram í formann, Guðmundur Höskuldsson í stjórn og Ísak Guðjónssson sem varamann; þeir fengu allir „Rússneska“ (einróma kjörnir)kostningu og taka sínar stöður.

· - Talsvert farið yfir málefni ISI/LIA nefndar og tilkynnt að stefnt sé að stofnun sérsambands í byrjun næsta árs.

· - Athugasemdir komu frá fundargestum vegna ralls er haldið er af BS þar sem keppnin þykir einhæf með aðeins einni sérleið og óbreytt í mörg ár. Rallið er samt gott og traust og skilar aukningu í keppandaflóruna en þörf þykir á að fara með rallið nær stærsta íbúakjarna norðurlands Akureyri. Skora þarf á BS að taka sérleiðir austar inn í rallið.

· - Matur/skemmtun í kringum Rally RVK þykir ábótavant, hugmyndir komu um að hafa lokaslútt óformlegra.

· - Rekstrareikningur klúbbsins er í plús sem er hið besta mál. Góður árangur náðs t.d með Rally RVK þó tapaðar séu tekjur frá fyrri árum frá Heklu. Er það verkefni nýrrar stjórnar að fullreyna innheimtu á þeim frármunum.

· - Lagt var til að gert sé upp skuld við Motors TV til að loka ekki á möguleika í framtíðinni. Senda þarf fleiri valgreiðslur út aftur.

· - Rætt var um og samþykkt að iðkenndagjöld yrðu óbreytt kr. 5000.

· - Meðlimafjölda þarf að auka og var t.d rætt um að nota Facebook til þess. Meðlimir ættu að vera kostnaðarlausir en gefa má út valgreiðslur.

· - Lagt var til að reglur um eindrifsflokk yrðu endurskoðaðar með það að markmiðið að gera meira „show“ úr flokknum. Opnun fyrir fleiri möguleika. Samþykkt var að tillögur yrðu sendar á formann reglunefndar Guðmund H.

· - Stigagjöf þegar kemur að endurræsingu ökumanna fékk athugasemdir, þegar fáir eru í flokk getur keppandi klárað eins 1 legg af 4 og fengið full stig! Þetta var lagt til að LIA/ISI myndi skoða.

· - Lagt var jafnframt til að taka upp svipað form á loka sérleið eins og gert er í WRC, þ.e Power Stage fyrirkomulag. Passa þarf stiga gjöf í samræmi við núverandi form.

 

 

Föstudaginn 25. Nóvember n.k fer fram Aðalfundur Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur. Fundurinn verður haldinn í fundarsal í húsnæði ÍSÍ að Engjavegi 6 í Reykjavík og hefst fundurinn kl 19:00

Dagskrá fundarins er eftirfarandi.

1.Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins og kjör stjórnar.

2. Önnur mál

Uppgjör keppnistímabilsins 2011

Reglubreytingar - flokkar og stigagjöf

Málefni Akstursíþróttanefndar ÍSÍ / LÍA

Allir velunnarar klúbbins eru boðnir velkomnir að taka þátt í umræðum en jafnframt er auglýst eftir félögum er áhuga hafa á því að taka þátt í stjórnarstarfinu og er áhugasömum bent á að hafa samband á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Stjórn BÍKR

 

 

Aðalskoðunarrall BÍKR - Upplýsingaskýrsla 1

Keppnisstjórn hefur ákveðið rásnúmer fyrir keppendur rallsins sem að ekki hafa áður fengið rásnúmer og eru þau eftirfarandi.

50 Eyjólfur Melsteð / Tinna Viðarsdóttir - JEEP Cherokee

51 Sigurjón Árni Pálsson / Páll Kristberg Pálsson - Subaru Legacy 2.0

52 Pétur Ástvaldsson /TBN - JEEP Pussycat

53 Ólafur Ingi Bjarnason / Alexander Már Steinarsson - MMC Lancer 1600 4x4

54 Björn Gísli Gylfason / Ólafur Þór Ingimundarson - Subaru Impreza

 

Þjónustubann er eftir sérleiðar 1 og 3 en áhöfnum er leyfilegt að þjónusta sjálfar með þeim varahlutum og verkfærum sem að um borð eru í viðkomandi bíl.

Keppnisstjórn hefur ákveðið að skipta keppninni upp í tvo leiðahluta og verður endurraðað fyrir leiðahluta 2 sem að hefst á SS 5 um Djúpavatn. Ný tímaáætlun verður gefin út með tilliti til þessa og verður hún birt hér á þessum vef, dagsett 29.09.2011. Auka Parc farmé verður sett upp á bílaplani N1 við Strandgötu í Hafnarfirði þar sem að keppendur stoppa á ferjuleiðinni milli SS 4og 5. Keppendum verður þar afhentur nýr rástími fyrir seinni leiðarhluta en tíminn út úr PF er frjáls, þ.e. að þegar áhafnir hafa fengið tímann er þeim frjálst að fara.

 

 

Rásröð Aðalskoðunarralls BÍKR

Keppnisstjórn hefur gefið út rásröð og er hægt að hægrismella á skjalið og "vista sem" til þess að fá það í hæfilegri stærð.

 

 

Aðalskoðunar Rally BÍKR 2011

Sjötta og síðasta umferð Íslandsmótsins í Rallakstri fer fram þann 2 október n.k. Keppnin fer fram í á leiðinum um Uxahryggi, Kaldadal og á Djúpavatnsleið. Sérstaklega verða veitt verðlaun fyrir besta tíma á leiðinni um Djúpavatn og verða veitt verðlaun í flokkunum Heildin, Jeppaflokkur, Einsdrifsflokkur og 4x4 non turbo flokkur. Í hverjum flokki eru verðlaun að verðmæti um 40 þús kr. Og því eftir nokkru að slægjast. Verðlaun eru í boði Löður, þvottastöðvanna og Irish Pub Hafnarfirði.


Skráning er hafin og skulu keppendur senda skráningu á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it með upplýsingum um bíl og áhöfn. Keppnisgjöld eru kr. 27.000,- og skulu þær greiðast inn á reikning klúbbsins, 130-26-796 kt. 571177-0569.


Ef að greiðsla og skráning berast fyrir kl 22:00 sunnudaginn 18.sept. Þá veitist 2.000 kr. Afsláttur af keppnisgjöldum.

Athygli er vakin á því að skráning er ekki tekin gild nema að keppnisgjöld séu greidd fyrir lok skráningarfrests.

Í skráningu skal koma fram fullt nafn, kennitala og klúbbur ökumanns og aðstoðarökumanns, ökuskírteinisnúmer ökumanns, tegund bíls og flokkur sem keppa á í.


Dagskrá keppninnar.

Sunnudagur 18. sept 2011 kl 22:00 fyrri skráningu lýkur.

Sunnudagur 25. sept 2011 kl. 22 Skráningu lýkur.

Mánudagur 26. sept 2011 Rásröð gefin út

Miðvikudagur 28. sept 2011 kl. 18 Keppniskoðun í Aðalskoðun, Hjallahrauni 4, Hafnarfirði.

Laugardagur 1. okt. 2011 kl 09:00 Ræsing fyrsta bíls á SS1

Laugardagur 1. okt 2011 kl 16:30 Samansöfnun við Aðalskoðun Hjallahrauni 4, Hafnarfirði.

Laugardagur 1. okt 2011 kl 21:00 verðlaunaafhending á Irish Pub í Hafnarfirði.

 

Keppnisstjóri er Þórður Bragason, S: 896 1442 og tölvupóstur er This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 

Tímamaster (hægrismellið og vistið skjal til þess að fá það í fullri stærð)

 

 

 

 

 

 

 

 


 

 

<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 1 of 11