Deildu á Facebook
Deildu þessari opnu á Facebook

FUNDARGERÐ

Aðalfundur Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur (BÍKR)

23. janúar 2010


Jón Þór Jónsson, formaður BÍKR, setti fundinn kl. 14:00 og skipaði sjálfan sig fundarstjóra með samþykki fundarins. Fylgt var dagskrá sem formaður kynnti fyrir fundarmönnum.


  1. Skýrsla stjórnar: Fyrst á dagskrá var yfirferð formanns klúbbsins yfir skýrslu stjórnar fyrir árið 2009. Einnig fór formaður yfir það sem er framundan á árinu 2010. Vísað er til glærukynningar formanns sem verður birt með fundargerð þessari á rafrænu formi á heimasíðu klúbbsins.

  2. Reikningar félagsins: Formaður kynnti að ekki hefði tekist að klára reikninga félagsins fyrir fundinn og lagði því til að þeir yrðu afgreiddir á framhaldsaðalfundi sem yrði boðað til þann 6. Febrúar 2010.

  3. Lagabreytingar: Formaður dreifði tillögum um þær lagabreytingar sem liggja fyrir aðalfundinum. Allar tillagðar breytingar formanns voru samþykktar en við bættist á fundinum eftir nokkrar umræður sú tillaga að kosið yrði í embætti formanns til tveggja ára í senn ásamt því að kosið yrði í helming stjórnar á hverju ári þá til tveggja ára í senn. Var ákveðið að formaður myndi útfæra þessa tillögu og leggja hana fyrir framhaldsfund sem yrði boðað til þann 6. Febrúar næstkomandi. Lagabreytingar þær sem lagðar voru fyrir fundinn verða einnig birtar á heimasíðu klúbbsins ásamt uppfærðum lögum hans.

  4. Árgjöld: Árgjöld voru ákveðin óbreytt frá fyrra ári.

  5. Kosning stjórnar: Kosningu stjórnar var frestað til framhaldsfundar sem verður boðað til þann 6. Febrúar næstkomandi vegna breytingatillögu sem rædd var í 2. lið.

  6. Kosning endurskoðenda: Endurskoðendur klúbbsins voru kosnir Borgar Ólafsson og Björgvin Benediktsson fyrir árið 2010.

  7. Önnur mál:

    1. Fundurinn ákvað að keppnisbifreiðar félaga í BÍKR yrði merktar með logo-i klúbbsins á keppnistímabilinu 2010 – formanni falið að útfæra og framkvæma.

    2. Guðmundur Höskuldsson tók til máls fyrir hönd reglunefndar ÍSÍ/LÍA og kynnti nýjar reglur fyrir nýjan keppnisflokk fyrir keppnisárið 2010 (non-turbo 4wd flokkur). Þá kynnti Guðmundur einnig drög að nýjum reglum fyrir sameinaðan eindrifsflokk (áður þrír flokkar, 1600, 2000 og nýliðaflokkur) og tillögu um útfærslu á vali nýliða ársins.

    3. Óskar Sólmundarson hélt kynningu á starfi sínu við forvarnir gegn hraðakstri og akstri undir áhrifum byggt á eigin reynslu og lífshlaupi. Fundarmenn lofuðu og þökkuðu Óskari fyrir ómetanlegt framlag sitt og var almenn umræða um stuðning klúbbsins eftir fremsta megni.

Fundi var frestað rétt fyrir 17:00 og ákveðið var að boða til framhaldsaðalfundar þann 6. Febrúar 2010 kl. 14:00 á sama stað til að afgreiða reikninga félagsins og klára óafgreidd mál eins og er lýst að ofan.

Framhalds-Aðalfundur 6. febrúar. 2010

Jón Þór Jónsson, formaður BÍKR setti fundinn kl 14:00 og skipaði sjálfan sig sem fundarstjóra með samþykki fundarins. Dagskrá framhaldsaðalfundar var eftirfarandi.

  1. Yfirferð og samþykkt reikninga félagsins: Daníel Sigurðarson gjaldkeri félagsins kynnti liðið fjárhagsár, helstu gjalda og tekjuliði. Met var sett í heildarveltu og hagnaður varð af rekstri félagsins.

  2. Tillögur að lagabreytingum: Tillögur sem að lagðar voru fram á fundinum 23.jan voru lagðar fram með smávægilegum breytingum og samþykktar.

  3. Kjör stjórnar: Í framboði til stjórnar voru Pétur Sigurbjörn Pétursson, Sigurður Óli Gunnarsson, Aðalsteinn G. Jóhannsson og Aðalsteinn Símonarson og var kosning þeirra staðfest með lófataki fundarins.

    Í framboði til formanns var Jón Þór Jónsson og var kosning hans einnig staðfest með lófataki fundarins.

    Endurskoðendur voru kosnir Borgar Ólafsson og Björgvin Benediktsson og Varamaður stjórnar Marian Sigurðsson.

    Stjórn var kjörin eftir ný samþykktum lögum og er því kjörin til tveggja ára.

  4. Önnur mál. Rætt var lítillega hvort að nauðsynlegt væri að stofna rekstrafélag fyrir félagið, til að mæta auknum fjárhagslegum umsvifum og voru menn sammála um að skoða þann möguleika ef að rekstrarreikningur stækkar enn frekar.

    Fram kom hugmynd um hvort að ekki væri hægt að bjóða upp á skyndihjálparnámskeið fyrir keppendur. Var þetta rætt frekar og formanni falið að taka málefnið upp við sérfræðinga á þessu sviði. Hugmyndin verður tekin upp með slökkviliði höfuðborgarsvæðisins til frekari útfærslu.

Fundi slitið kl 15:15

 

Framhalds-aðalfundur.

Aðalfundi BÍKR sem að fór fram í gær var ekki slitið formlega vegna þess að endurskoðaðir reikningar félagsins lágu ekki fyrir. Fundinum var því frestað til 6 febrúar kl 14:00. Fundarstaðsetning er óbreytt, fundarsalir 3 hæð að Engjavegi 6 í Laugardal.

Í framboði til stjórnar eru 

Pétur Sigurbjörn Pétursson
Sigurður Óli Gunnarsson
Aðalsteinn G. Jóhannsson
Aðalsteinn Símonarson (gjaldkeri)

Formaður 

Jón Þór Jónsson

Varamaður 

Marian Sigurðsson

Endurskoðendur

Borgar Ólafsson

Björgvin Benediktsson

Fram voru lagðar tillögur að breytingum á lögum félagsins og eru þær útskýrðar hér að neðan.

 

Lög fyrir Bifreiðaíþróttaklúbb Reykjavíkur

  1. 1.gr.

Nafn, heimili hlutverk

Nafn klúbbsins er Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur, skammstafað BÍKR.

2. gr.

Heimili hans og varnarþing er í Reykjavík.

3. gr.

Hlutverk BÍKR er að vera vettvangur áhuga- og/eða atvinnumanna um akstursíþróttir og standa fyrir keppnum í flestum greinum akstursíþrótta.

4. gr.

Félagar og félagsgjöld

Félagar geta allir orðið sem áhuga hafa á akstursíþróttum.

5. gr.

Félagsgjöld skulu ákveðin árlega á aðalfundi klúbbins og miðast við almennt verðlag og umfang starfseminnar.

6. gr.

Félagsmenn skulu fá skírteini til eins árs er þeir greiða félagsgjöld.

7. gr.

Stjórn, aðalfundur, endurskoðendur og kosningar

Stjórn klúbbsins skal skipuð fimm mönnum. Kosning fer fram á aðalfundi og skal kosið sérstaklega um formann og er hann kjörinn til tveggja ára. (rauðletrað bætist við.)

8. gr.

Kjörtímabil stjórnar er eitt ár. Stjórnarmenn skulu kjörnir til tveggja ára og eru að hámarki 2/4 hlutar þeirra í kjöri ár hvert.

Hér stóð "Kjörtímabil stjórnar er eitt ár."

9. gr.

Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund.

10. gr.

Á aðalfundi skal kjósa tvö endurskoðendur til eins árs.

11. gr.

Stjórnin skal sjá um starfsemi klúbbsins milli aðalfunda.

12. gr.

Kjörgengi og kosningarétt hafa allir félagar í BÍKR sem greitt hafa félagsgjöld sín fyrir aðalfund eða á honum.

13. gr.

Kosning fer fram með handauppréttingu, eða með leynilegri kosningu, séu fleiri framboð en stöðurnar sem kjósa á um.

 

14. gr.

Aðalfundur skal haldinn fyrir Nóvember lok ár hvert og skal stjórnin boða hann með minnst fjórtán daga fyrirvara bréflega eða rafrænt til gildra félaga. Í öllum málum ræður einfaldur meirihluti.

Hér stóð "Aðalfundur skal haldinn fyrir febrúar lok ár hvert og skal stjórnin boða hann með minnst fjórtán daga fyrirvara bréflega eða rafrænt til gildra félaga. Í öllum málum ræður einfaldur meirihluti."

15. gr.

Formaður stýrir fundi.

16. gr.

Reikningsár klúbbsins er frá aðalfundi til aðalfundar ár hvert.

17. gr.

Dagskrá aðalfundar er:

Formaður setur fundinn.

Skýrsla stjórnar.

Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.

Lagabreytingar.

Ákvörðun árgjalda.

Kjör formanns og fjögurra stjórnarmanna.

Kosning tveggja endurskoðenda.

Önnur mál.

Hér féll út næstsíðasti liðurinn "Kosning fultrúa á aðalfund LÍA"


18. gr.

Starfsnefndir og keppnisstjórnir

Forsvarsmenn starfsnefnda og keppnisstjórnir einstakra keppna skulu skipaðar af stjórn hverju sinni og ber stjórn að sjá til þess að að lágmarki starfi nefndir sem að fjalla um eftirfarandi málaflokka.

  • Keppnishald

  • Miðlar sölu- og markaðsmál.

  • Starfsmannahald

  • Umhverfismál

  • Rally Reykjavík

  • Forvarnir og fræðsla

18. gr hljóðaði áður "Starfsnefndir og keppnisstjórnir einstakra keppna skulu skipaðir af stjórn hverju sinni."


19. gr.

Stjórn skal skipa í nefndir og ráð er starfa á vegum Akstursíþróttanefndar ÍSÍ/LÍA

19.gr hljóðaði áður "Aðalfundur skal skipa þriggja manna reglunefnd til að       endurskoða keppnisreglur.  Tillögur þess efnis skal           komið til LÍA að fengnu samþykki félagsfundar."

20. gr.

Þeim sem eru í keppnisstjórn keppni er óheimil þátttaka í keppninni.

 

21. gr.

Lagabreytingar

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi BÍKR. Tillögur að lagabreytingum skulu liggja fyrir skriflega á aðalfundi og vera dagsettar og undirritaðar af gildum félaga í klúbbnum

 

22.gr.

Engum skal vera heimilt að skuldsetja félagið nema með samþykki meirihlutar stjórnar.

 

Samþykkt á aðalfundi 06. feb. 2010 og tekur gildi

 

 


 

Aðalfundur Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur. 

Aðalfundur BÍKR verður haldinn laugardaginn 23 janúar n.k. í salarkynnum ÍSÍ á 3. hæð að Engjavegi 6. Reykjavík.

Fundurinn hefst stundvíslega kl 14:00.

Samkvæmt lögum félagsins er dagskrá aðalfundar eftirfarandi:

Formaður setur fundinn.
Skýrsla stjórnar.
Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
Lagabreytingar.
Ákvörðun árgjalda.
Kjör formanns og fjögurra stjórnarmanna.
Kosning tveggja endurskoðenda.
Kosning fulltrúa í aðalfund LÍA
Önnur mál.


 

Jólahittingur starfsmanna BÍKR

Nú á mánudaginn ætlum við að hittast á skrifstofu BÍKR að Engjavegi, starfsmenn í rally. Farið verður yfir komandi keppnistímabil, hvaða breytingar eru fyrirhugaðar þá aðallega á Rally Reykjavík 2010. Ljóst er að starfsmannahald í kringum rallið mun í það minnsta tvöfaldast og þeirri þörf þarf að mæta á einhvern hátt. Piparkökum, Jólaöli og almennri jólastemningu lofað.

Sjáumst hress og kát kl 20:00 mánudaginn sjötta.

 

Félagsfundur BÍKR 5.des.

Almennur félagsfundur BÍKR verður haldinn laugardaginn 5 des. n.k. í húsi ÍSÍ að Engjavegi 6 nánar tiltekið í fundarsölum þriðju hæð. Gengið er inn um aðalinnganginn og lyftan á hægri hönd tekin upp á þriðju hæð en þeir sem sér treysta eru hvattir til að taka stigann. Fundurinn hefst kl 11.

Málefni fundarins er eftirfarandi:

1.  Kynning á nýju, breyttu og enn alþjóðlegra Rally Reykjavík 2010
2.  Kynning á tillögu að nýju skipuriti BÍKR,  undir-nefndum stjórnar og möguleg mönnun þeirra.
3.  Umræða um reglubreytingar.
4.  Undirbúningur fyrir aðalfund, fyrirsjáanlegar mannabreytingar og viðbrögð við þeim.
5.  Önnur mál og almennar fyrirspurnir.

Ef að félagsmenn hafa einhverjar tillögur að málefnum sem að mætti ræða undir lið nr 5. þá eru þær vel þegnar á póstfangið okkar This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Fundurinn er öllum opinn.

Kv. stjórn BÍKR

 

<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 Next > End >>

Page 4 of 6