Deildu á Facebook
Deildu þessari opnu á Facebook

Lokahóf ÍSÍ/LÍA 

Í gærkvöldi var lokahóf Akstursíþróttanefndar ÍSÍ / LÍA haldið með pompi og pragt. Þar voru veitt verðlaun Íslandsmeistara í Drifti, Götuspyrnu, Sandspyrnu, kvartmílu, Rallycrossi, Rally og Torfæru.

Einnig var tilkynnt um val á akstursíþróttamanni ársins 2009 og var það félagi í BÍKR, Daníel Sigurðarson sem að hreppti þennan eftirsóknarverða titil. Daníel hefur keppt í rallakstri undir merkjum BÍKR í Bretlandi undanfarin ár og hefur árangur hans verið eftirtektarverður.


Allir meistarar ársins 2009 fá innilega hamingjuóskir frá stjórn BÍKR.

 

123 

Daníel Sigurðarson akstursíþróttamaður ársinns 2009
 

 

123 

Íslandsmeistarar 2009 i 1600cc flokki eindrifsbíla. Sigurður Arnar Pálsson (aðstoðarökumaður) og Halldór Vilberg Ómarsson (ökumaður).

 

 

123 

Íslandsmeistarar 2009 í 2000cc flokki eindrifsbíla. Stefán Þór Jónsson (aðstoðarökumaður) og Hilmar Bragi Þráinsson (ökumaður). 
 

 

123 

Íslandsmeistarar 2009 í jeppaflokk. Guðmundur Orri McKinstry (ökumaður) og Hörður Darri McKinstry (aðstoðarökumaður)
 

 

123 

Íslandsmeistarar 2009 í flokki N. Sæmundur Sæmunds (staðgengill fyrir hann á myndinni)(aðstoðarökumaður) og Jón Bjarni Hrólfsson (ökumaður)
 

Úrslit úr haustsprett

18.10.09.

 

Ökumaður 

1. Páll Harðarson

2. Hilmar B. Þráinsson

3. Elvar S. Jónsson

4. Sigurður Óli Gunnarsson

5. Hlöðver Baldursson

6. Ragnar Magnússon

7. Helgi Óskarsson

8. Björgvin Benediktsson

9. Linda Karlsdóttir

10. Magnús Þórðarson 

 

Nánar hér 

 

Nesbyggðar - röllum á Snæfellsnesi lokið.

Nú um helgina fóru fram tvær síðustu umferðirnar íslandsmótsins í rallakstri og fóru keppnirnar fram á Snæfellsnesi. Á föstudag var fyrri keppnin og fór hún fram að hluta til í myrkri, sem er virkilega krefjandi fyrir áhafnir bílanna. Það er skemst frá því að segja að sigurvegarar næturrallsins voru heimamaðurinn Páll Harðarson og Aðalsteinn Símonarson á Subaru Impreza en þeir voru rúmlega fjórum mínútum á undan næsta bíl sem að þeir Jóhannes V. Gunnarsson og Björgvin Benediktsson óku. Í þriðja sæti komu svo Guðmundur Orri Mckinstry og Hörður Darri Mckinstry á Tomcat, en árangur þeirra er sérstaklega eftirtektarverður þar sem að þeir aka í jeppaflokki. Þeir bræðurnir sigruðu jafnframt jeppaflokkinn og skutu sér þannig í fyrsta sæti íslandsmótsins upp fyrir þær Ástu Sigurðardóttur og Tinnu Viðarsdóttur. Í 2000 flokki unnu Hilmar Bragi Þráinsson og Stefán Þór Jónsson sigur og tryggðu sér þannig íslandmeistaratitilinn í þeim flokki. Í nýliðaflokki voru þeir Katarínus Jón Jónsson og Ingi Örn Kristjánsson fljótastir. 

Almennt voru menn ánægðir með rallið og þótti mönnum myrkrið gefa keppninni skemmtilegt yfirbragð. Miðað við úrslitin héldu menn allmennt að baráttan yrði ekki mikil í seinna rallinu en annað átti eftir að koma á daginn. Haldið var af stað á laugardagsmorgun og keyrt í nágrenni jökuls. Á fyrstu leið urðu þeir jafnir Páll/Aðalsteinn og Jóhannes/Björgvin og skitpust þessar áhafnir á að taka sekúndur af hvorri annari og fyrir síðustu sérleið var staðan þannig að einungis 6 sekúndur skildu þær að. Á síðustu leiðinni drap Subaru bifreið þeirra Páls og Aðalsteins á sér og gekk erfilega að fá hana í gang aftur og töpuðu þeir þannig forustunni og sigrinum til þeirra Jóhannesar og Björgvins en þeir voru vel að honum komnir þar sem að þeir sýndu fína takta og héldu uppi mikili pressu.

Í Jeppaflokki sigruðu þeir Sighvatur Sigurðsson og Andrés Freyr Gíslason á Mitsubishi Pajero en þeir voru 29 sekúndum á undan þeim Marian Sigurðsyni og Jóni Þór Jónssyni á Jeep Cherokee. Þriðju í jeppaflokki urðu svo þeir Guðmundur Orri og Hörður Darri á Tomcat og tryggðu þeir sér íslandsmeistaratitilinn með öruggum akstri.

Feðgarnir Hlöðver Baldursson og Baldur Hlöðversson komu fyrstir í mark í 2000 flokki en þeir höfðu háð mikla baráttu við hina feðgana, Sigurð Óskar Sólmundarson og Odd B. Sigurðsson en þeir duttu út eftir að það gaf sig hjólabúnaður að framan.

Nýliðaflokkinn sigruðu Halldór Vilberg Ómarsson og Sigurður Arnar Pálsson og gulltryggðu þannig sinn titil. 

Það leiðindaróhapp kom upp á leiðinni um fjórðu sérleið um Jökulháls að einn keppnisbílanna lenti utanvegar og var það mat læknis keppninar að kalla þurfti til sjúkrabíl til að flytja áhöfnina á skúkrahús til nánari skoðunar. Við þetta tafðist rallið og var það á endanum stytt um tvær leiðir. Áhöfnin slapp án beinbrota en er marin, teygð og tognuð og er þeim óskað góðs bata. Ljóst er að betur fór en á horfðist í þetta skiptið þökk sé góðum öryggisbúnaði en bíllinn er líklegast ónýtur eftir útafaksturinn.

Að lokum er rétt að færa öllum íslandsmeisturum árnaðaróskir og velgengni í undirbúningi næsta tímabils.

 

Rásröð Fyrir 5. og 6. Umferðir

5. Umferð

6. Umferð 

 

Breyting á Tímamaster

Snæfellsnes-Rally

Sérleiðin Breið er keyrð Austur en ekki Vestur

 

Kv. Keppnisstjórn

 

<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 Next > End >>

Page 5 of 6