Bílaíþróttaklúbbur Reykjavíkur (BÍKR) stendur fyrir glæsilegri rallýbílasýningu á Korputorgi dagana 10. og 11. maí næstkomandi. Sýningin ber yfirskriftina „50 ára rallý“ og verður haldin við inngang D31.
Gestir fá einstakt tækifæri til að skoða fjölbreytt úrval rallýbíla og kynnast sögu og þróun greinarinnar á Íslandi í gegnum árin. Aðgangseyrir er 2.500 krónur.
Að sögn skipuleggjenda er þetta viðburður sem enginn bílaáhugamaður ætti að láta fram hjá sér fara. Að sýningu lokinni laugardaginn 11. maí verður einnig haldið létt kvöldpartý fyrir gesti.
Sýningin er opin báða dagana og eru allir velkomnir.